Þann 20. nóvember gerðist sá merki atburður að heimasætan flutti alveg að heiman, tæmdi herbergið sitt. Hún flutti þó ekki langt, á Vesturbrún á Flúðir og kærastinn, Leó Viðar mætir um helgar þangað til hann fær vinnu á svæðinu. 
Búin að fá svínaflensusprautu og Jói fer í dag. Mikill léttir að vera laus við að eiga það á hættu að fá þá pest. 
28. nóvember fórum við til Reykjavíkur. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég fór heim á Cadillac Fleedwood 1958 limosin. Bíllinn var í upphafi í eigu Kennedy fjölskyldunnar en var kominn í hendurnar á Pétri svarta frænda mínum. Vorum við með hann í 2 vikur til prófunnar og það endaði með því að við keyftum bílinn af frænda þann 12/12. 

4. desember fórum við í jólahlaðborð á Hótel Flúðum. Ljómandi góður matur og þjónustan frábær. Mæli með Hótel Flúðum.
10. des. Hleyptum til í fjárhúsinu, lásum af öllum rollunum og sorteruðum eftir ætterni í hólf og slepptum hrútunum lausum. Fullt af rollum að ganga og má búast við að sauðburður byrji 1. mai í vor. Vonandi verður gott vor.
Síðasta vika var ansi annasöm, 6 fundir, afmælisveisla, kúaskoðun og margt fleira.
Mánudagur byrjaði með Fræðslunefndarfundi í Flúðaskóla um morguninn en um kvöldið var svo fundur á Laugavatni hjá Menningarklasa Uppsveitanna. Á þriðjudeginum var fundur um ruslamál í sveitinni og afmælisveisla hjá pabba í bænum en karlinn varð 65 ára. Stórveisla með mikið af kökum og brauðréttum.
Miðvikudagurinn byrjaði með kúaskoðun kl. 7,30 en þá kom Mundi ráðunautur hjá Bssl og skoðaði slatta af ungum kúm og dæmdi. Kl. 14.00 var svo hreppsnefndarfundur. Fimmtudagur: Veiðifélagsfundur á Selfossi með SVFR. Samið var um leigugreiðslur fyrir árið 2010. Klárað að skrifa jólakortin um kvöldið.
Föstudagur: Klárað að slá upp fyrir sökklum í bílskúrinn. Guðjón kom heim frá Hvanneyri. Ingvar fór á jólahlaðborð á Hótel Flúðum með bekknum sínum í Flúðaskóla og við Jói fórum á jólafund hjá Bifreiðaklúbbi Suðurlands. Mikil gleði þar.
Laugardagur 12. des. Pétur svarti frændi og Óli sonarsonur hans komu um kl. 10,00 á gamla 1953 Ford vörubíl og náði okkur í bælinu.
Á sunnudag keyrði ég Pétur og Óla frænda heim á Vitleysuströndina af því Pétur vildi skilja Fordinn eftir og geyma hann upp í sveit en ekki ofaní fjöru þar sem hann býr en Jói fór niður í Þorlákshöfn með Ingvar og 4 aðra stráka og 5 mótorcross hjól á kerru en strákarinr voru að æfa motorcross í sandinum þar.
Í dag 16. des er verið að lesa hreppsnefndargögn en á morgunn er hreppsnefndarfundur og á að afgreiða fjárhagsáætlun þá.
Hlakka til að eiga smá frí um jólin þó alltaf þurfi þó að fara í fjósið að mjólka og gefa og gefa rollunum, hænunum, hestunum, hundinum og mannfólkinu að eta.